|
||
|
![]() ![]() ![]() ![]() ![]()
|
VelkominVelkomin á heimasíðu Grænna borgardaga 2005! Borgir og bæir hvarvetna í Evrópu munu taka þátt í Grænu borgardögunum (Urban Green Days (UGD), sem orðnir eru að árlegum viðburði á vegum Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í tengslum Grænu vikunni í Evrópu dagana 31. maí til 3. júní, sem aftur tengist Umhverfisdegi Sameinuðu þjóðanna 5. júní. Hér fara á eftir nánari upplýsingar um þennan viðburð og leiðbeiningar um það hvernig sveitarstjórnin þín getur skipulagt velheppnaðar uppákomur í Grænu vikunni. Fjöltyngdar upplýsingarAllar upplýsingar á þessari vefsíðu eru aðgengilegar á ensku. Upplýsingar á öðrum tungumálum er tiltækar á blöðum sem hægt er að hlaða niður af heimasíðunni. Kynning á eigin viðburðum & lærdómur frá öðrumHægt er að skrá viðburði í gagnagrunn Grænu borgardaganna á hvaða tungumáli sem er – skrásetjaranum að kostnaðarlausu. Gagnagrunnurinn er aðgengilegur á Netinu og hægt er að leita í honum með þar til gerðri leitarvél. Með hennar hjálp er líka hægt að kynna sér aðra UGD-viðburði hvar sem er í Evrópu. Hægt er að leita sérstaklega að skráningu á eigin tungumáli. Aðstandendur verkefnisins hvetja aðila í hverju landi til að koma upplýsingum um umhverfistengda viðburði á framfæri við breiðan lesendahóp í öðrum löndum álfunnar með því að velja síðuna ‘Enter an Activity’. Skráningarformið fyrir viðburðina er til á allmörgum tungumálum á ‘Enter an Activity’-síðunni – athugið hvort rétta tungumálið sé ekki þar að finna. Kynnið ykkar efni og hafið gagn af efni annarraSíðan ‘Share Materials’ inniheldur ríkulegt magn af bæklingum, póstkortum, veggspjöldum, fréttatilkynningum o.s.frv. á mismunandi tungumálum og til mismunandi nota. Farið inn á þessa síðu ef þið viljið nýta ykkur efni sem aðrir hafa birt eða ef þið viljið gefa öðrum kost á að skoða efnið ykkar, (sendið viðkomandi skjöl til urbangreendays@iclei.org). HjálpargögnTil að auðvelda ykkur að kynna viðburðina hefur Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, í samvinnu við ICLEI, komið upp safni af merkjum, grafík og öðru efni sem hægt er að nota í prentun og útgáfu. Þetta er hægt að nálgast á síðunni ‘Resources’. Tengiliði á landsvísuTengiliði á landsvísu og erindreka Grænu borgardaganna er að finna í öllum löndum Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins. Þessir aðilar aðstoða sveitarstjórnir sem vilja skipuleggja viðburði af þessu tilefni. Uppfærðan lista yfir tengiliði í einstökum löndum er að finna á síðunni ‘National Partners’. Að auki er hægt að fá aðstoð á ensku, spænsku, frönsku og ítölsku í þjónustusíma UGD, +49-761-368-9263, frá mánudegi til föstudags. Einnig er hægt að leita aðstoðar á urbangreendays@iclei.org. Við óskum ykkur gefandi Grænna borgardaga. Hlökkum til að frétta af góðri viðleitni ykkar og hugmyndum. Grænir borgardagar er verkefni á vegum Umhverfisskrifstofu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, (DG-Umhverfi), undir umsjón ICLEI – Sveitarstjórna fyrir sjálfbæra þróun. Page updated: 10.Mar.2008. Today's date: 08. September 2010 |
|